Rólegheitarinnar kósýgusa eða pumpandi partýgusa? Hjá Ástu geturðu búist við öllu litrófinu. En fyrst og fremst er þakklæti henni alltaf efst í huga. Þakklæti fyrir að fá að vera í gullfallegu Skeljavíkinni hverju sinni og leiða gusugesti inn í endurnærandi ferðalag fyrir öll skynfærin - ávallt með núvitund, hlustun, öndun, mildi og gleði að leiðarljósi. Ásta er klassískt menntaður víóluleikari og jógakennari. Á daginn kennir hún við Tónlistarskóla Ísafjarðar en á kvöldin bregður hún sér í gusugírinn.